Polestar er rekið á Íslandi af Brimborg

Hoppa í aðalefnið
Polestar 2

Öryggi

Hannaður til að vernda

Polestar 2, með 5 stjörnu Euro NCAP öryggisflokkun, byggir á áratuga byltingarkenndum öryggisrannsóknum og sameiginlegri tækniþekkingu með Volvo Cars. Hann kemur búinn nýjustu verndandi og fyrirbyggjandi tækni, tilbúinn til að grípa inn í þegar þarf. 

Frame of the Polestar 2 against an orange background

Ratsjár, myndavélar og skynjarar

Polestar 2, sem nýtur góðs af samstarfsaðilum í öryggistækni á borð við Zenseact og Volvo Cars, notar þrjár ratsjáreiningar, fimm myndavélar og tólf úthljóðsskynjara til að vakta umhverfi sitt. Virka aðalöryggistölva bílsins vinnur úr inntaki þeirra til að flokka mismunandi vegfarendur og umferðaraðstæður, og hjálpa til við að forðast árekstra.

Polestar 2 from above illustrating all the places where it has sensors or radars.
Polestar 2 pictured from the front against a grey background

SmartZone

Þar sem Polestar 2 þarf ekki grill til að anda, hefur því verið skipt út með SmartZone, sem hýsir myndavél og öfluga, hitaða ratsjá. Með þeim getur bíllinn greint aðra vegfarendur og aðstæður sem eru hugsanlega hættulegar, og aðstoðað ökumanninn í öllum veðurskilyrðum og skyggni. 

Blindpunktsaðvörun (Blind Spot Information System)

Blindpunktsaðvörun (Blind Spot Information System) (BLIS) greinir ökutæki sem ætla að fara fram úr og blikkar viðvörunarljósi í rammalausu speglunum. Ef ökumaðurinn heldur áfram að skipta um akrein beinir stýrisstuðningurinn Polestar 2 aftur í akreinina sem hann var í. 

Akreinavari

Útafakstursvörn

Minni hætta á að farið sé út af veginum. Ef Polestar 2 leitar fyrir slysni í átt að vegöxlinni hjálpar útafakstursvörnin (Run-off Road Mitigation) til við að stýra bílnum tilbaka þegar ekið er á hraða á bilinu frá 65 til 140 km/klst.. Í því tilviki sem bíllinn fer út af yfirborði vegarins beitir kerfið hemlunum til að lágmarka áhrif hugsanlegs árekstur. Ökumaðurinn getur yfirtekið stýrisstuðninginn hvenær sem er. 

Akreinavari

Veglínuskynjari

Á hraðabilinu frá 65 til 200 km/klst. er veglínuskynjarinn (Lane Keeping Aid) virkur og leiðréttir stefnu bílsins ef hann er nálægt því að fara yfir veglínu án þessa að stefnuljós hafi verið gefið. Ef inngrip á stýri leiðréttir stefnuna ekki nægilega mikið heyrist einnig hljóðviðvörun. Hægt er að kveikja og slökkva á kerfinu með miðjuskjánum. 

Akreinavari

Vörn gegn akstri yfir á akrein fyrir umferð úr gagnstæðri átt

Ef Polestar 2 fer yfir veglínu og stefnir í veg fyrir ökutæki sem kemur úr gagnstæðri átt, án þess að ökumaðurinn sýni nein viðbrögð, þá gefur kerfið fyrir vörn gegn akstri yfir á akrein fyrir umferð úr gagnstæðri átt (Oncoming Lane Mitigation) frá sér viðvörun með mynd og hljóði, og hjálpar til við að stýra bílnum tilbaka. Þetta kerfi virkar á hraðabilinu frá 60 til 140 km/klst. og ökumaðurinn getur alltaf gert það óvirkt. 

Bílastæðaskynjarar og aðstoð

Gerðu þrönga staði auðvelda. Polestar 2 notar myndavélar og skynjara sína til að hjálpa til við að gera auðveldara að fara um þröng stræti, horn og bílastæði og öruggara fyrir þá sem eru innan í og utan við bílinn.

Centre display showing the parking sensors on the screen

Bílastæðahjálp

Umferðarskynjari að aftan (Cross Traffic Alert) með sjálfvirkri hemlun

Þegar bakkað er út úr innkeyrslu, bílastæði eða fyrir horn, þá varar umferðarskynjari að aftan (Cross Traffic Alert) við bílum, hjólreiðamönnum og gangandi vegfarendum sem koma inn á svæðið. Ef ökumaðurinn heldur áfram að bakka þá beitir Polestar 2 hemlunum sjálfkrafa.  

Bílastæðahjálp

360° og baksýnismyndavélar

Við tilfærslur sýnir Polestar 2 umhverfi sitt úr lofti á miðjuskjánum. Fjórar myndavélar veita 360° útsýni, miðað við sýndarmynd af bílnum til að aðstoða ökumanninn við að fara um þröng rými. 

Illustration of a Polestar 2 demonstrating the Park Assist

Bílastæðahjálp

Bílastæðahjálp

Polestar 2 kemur með bílastæðahjálp (Park Assist) sem staðalbúnað, sem mælir fjarlægð frá hindrunum að framan, aftan og frá hliðum bílsins. Kerfið leiðbeinir með mynd og hljóði þegar tilfærslur eiga sér stað í þröngu rými. 

Adaptive Cruise Control

Ein ratsjá og margar myndavélar vakta umhverfi Polestar 2 og hjálpa bílnum að viðhalda öruggri stöðu á veginum. Adaptive Cruise Control aðlagar hraðann að hraða og fjarlægð ökutækisins fyrir framan, á meðan Pilot Assist gerir varfærnar breytingar á stýringu til að halda Polestar 2 á miðri akrein. Hraðastilling og aðlaganlegur hraðatakmarkari eru innifalin sem staðalbúnaður.

Uppvakningarkerfi

Polestar 2 hjálpar ökumanninum að halda sér einbeittum. Uppvakningarkerfið (Driver Alert Control) notar myndavél til að rekja leið bílsins miðað við akreinamerkingar og virkjar hljóð- og myndrænar viðvaranir ef það greinir merki um syfju eða truflun hjá ökumanninum.  

Viðvörunarkerfi

Aftanákeyrsluvari

Aftanákeyrsluvarinn athugar hvort það sé ökutæki fyrir aftan Polestar 2 og reiknar út hættuna á árekstri. Ef bíll kemur of nálægt blikka öll viðvörunarljós hratt. Ef kerfið skynjar að slys sé yfirvofandi þá strekkir það öryggisbeltin og beitir hemlunum. 

Snjöll lýsing

Polestar 2 notar myndavélar og skynjara til að aðlaga aðalljósin að umhverfi bílsins, sem veitir bestu mögulegu lýsingu á meðan fyrirhöfn ökumanns verður minni.

Aðlaganlegt ljósablað að aftan

Með pörun framúrstefnulegrar lögunar og framsýnnar tækni, notar afturljósablaðið 288 sjálfstætt stýrð LED-ljós til að aðlagast margskonar akstursaðstæðum. Það skín bjartar á sólríkum dögum til að auka sýnileika, aðlagast myrkrinu til að spara orku og sýnir móttöku- eða kveðjuljósaröð þegar ökumaðurinn snertir hurðarhandfangið.

Aðalljós

Pixel LED-aðalljós með aðlaganlegum hágeisla

Stjórnað af myndavél uppsettri að framan, er kveikt og slökkt á Pixel LED-ljósunum 84 í hvoru aðalljósi fyrir sig til að aðlaga geislann að lýsingu og umferðarskilyrðum. Þau geta skyggt út allt að fimm svæði fyrir framan bílinn og aukið þannig útsýnið án þess að blinda aðra ökumenn.

Fáanlegt sem uppfærsla.

Front of the Polestar 2 showing the high beam front light

Aðalljós

Virk háljós

Lýstu án þess að blinda. Polestar 2 kemur með virka háljósatækni sem staðalbúnað, sem skynjar aðalljós ökutækja sem nálgast úr gagnstæðri átt, eða afturljós bíla sem eru beint fyrir framan. Þegar þetta á sér stað skipta aðalljósin sjálfkrafa úr hágeisla í lággeisla. 

The frameless mirror on the Polestar 2

Hurðaspeglar

Rammalaus hönnun

Speglun enduruppgötvuð. Í einkennandi hurðaspeglum Polestar er dregið er úr stærð umlykjunnar í kringum glerið, sem hámarkar sjónsviðið og minnkar rúmmál spegilsins í heild um 30%. Útkoman er auðkennandi, mínímalísk hönnun með minni vindmótstöðu. 

Hurðaspeglar

Sjálfvirk stilling

Hliðarspeglarnir geta hallast niður til að veita betra útsýni þegar bakkað er, og þegar ekið er í myrkri dimma þeir skært ljós frá bílum sem nálgast. Einnig er hægt að fella þá að til að hlífa þeim þegar lagt er. 

Rafhlöðuöryggi

Rafhlöðupakki Polestar 2 er innan í stál- og álramma til að minnka hættuna á skemmdum í tilviki áreksturs. Verndarhlíf báðum megin gegn hörðum árekstrum að framan (SPOC), minnkar líkurnar á því að hlutir stefni á rafhlöðuna ef framendi bílsins verður fyrir höggi sem kemur ekki beint framan á. 

Detailed illustration of the battery protection in the Polestar 2

Rafræn rafhlöðuvernd

Ef Polestar 2 greinir að bíllinn hafi lent í árekstri grípur háþróuð öryggistækni hans umsvifalaust til aðgerða. Háspennukerfi rafhlöðupakkans er sjálfkrafa aftengt frá öðrum hlutum bílsins, sem dregur verulega úr hættu á skemmdum á rafrásum. 

Vernd eftir árekstur

Farþegarými Polestar 2 er byggt úr ofursterku stáli til að verja farþega við árekstraraðstæður. Í tilfelli áreksturs virkja skynjarar loftpúða að framan, hliðarloftpúða og innri hliðarloftpúða, sem veita einstaklingsbundna vernd og draga úr hættunni á meiðslum ökumanns og farþega að framan.  

Illustration of the post impact protection and the airbags exploding against an ornage background

Samsetningaröryggi

Öryggisbúrið úr stáli og áli veitir farþegum hámarksvernd við árekstur. Neðri kraftlínan að framan er hönnuð til að draga í sig orkuna við framanákeyrslu, sem dregur úr hættu á líkamstjóni hjá farþegum og aflögun rafhlöðupakkans. 

Meira um Polestar 2

    • Myndefni er einungis til skýringar.

    Polestar er rekið á Íslandi af Brimborg

    Fáðu allar nýjustu fréttirnar um Polestar

    Gerast áskrifandi
    Polestar © 2024 Öll réttindi áskilin
    LagalegtSiðareglurPersónuverndVafrakökurAðgengisyfirlýsing