Hoppa í aðalefnið
Polestar 2
Frekari upplýsingar

Ábyrgð og þjónusta

Þjónusta og viðhald

Öll sú tæknilega sérþekking sem Polestar þarf er alltaf nálæg vegna samvinnu okkar við Volvo Cars. Í Evrópu eru hundruðir þjónustustaða (service points) reiðubúnir að aðstoða ökumenn við viðhald, viðgerðir og hugbúnaðaruppfærslur.

Finna nálægan þjónustustað (service point)
Polestar 2 fron view within an industrial environment

Minni þörf á þjónustu

Dæmigerð aflrás bensín- eða dísilbíls inniheldur yfir 2.000 hluti sem hreyfast, meðan rafdrifna aflrás Polestar 2 er með um 50. Af því leiðir að minni þörf er á þjónustu þar sem, í rauninni, eru dekk, rúðuþurrkublöð og loftsía farþegarýmis einu hlutirnir sem þarf að athuga reglulega.

Polestar 2 driving on to a property

Sækja og afhenda

Ef fara þarf með Polestar 2 í viðhald eða viðgerð getum við séð um að sækja hann og afhenda heim til þín eða á vinnustað. Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.

Ábyrgð

Polestar bílar eru framleiddir samkvæmt sömu kröfuhörðu viðmiðunum og hönnun þeirra byggir á. Útkoman er óviðjafnanleg framleiðslugæði og ábyrgð sem nær yfir hið óvænta og ófyrirséða.

Number 2 in black against a grey background

Ökutækisábyrgð

Ef einhver hluti bílsins bilar vegna framleiðslugalla verður gert við hann án endurgjalds á viðurkenndum Polestar þjónustustað (service point). Þessi ábyrgð nær yfir fyrstu 2 árin eftir afhendingu, burtséð frá breytingum á eignarhaldi, eða að 50.000 kílómetrum, hvort sem á undan kemur.

Black 8 on an orange background

Rafhlöðuábyrgð

Allir gallar í virkni rafhlöðu, efni eða vinnu verða lagfærðir án endurgjalds innan 8 ára eða 160.000 kílómetra, hvort sem kemur á undan. Ef ástand rafhlöðunnar (SoH) fellur niður fyrir 70% af upphaflegri rýmd innan fyrstu 8 ára af eignarhaldi, verður skipt um rafhlöðuna án endurgjalds.

Black 12 against a grey background

Ryðvarnarábyrgð

Ef einhversstaðar er gat á yfirbyggingunni vegnar tæringar verður gert við eða skipt út þeim þiljum sem þetta hefur áhrif á án endurgjalds af viðurkenndum Polestar þjónustustað (service point). Ryðvarnarábyrgðin nær yfir fyrstu 12 árin eftir afhendingu burtséð frá breytingum á eignarhaldi. Ábyrgðin er veitt á alþjóðlegum grunni en landsbundin afbrigði gætu verið til staðar.

Detailed image of the button to call for Polestar Assistance

Polestar aðstoð

Með hverjum nýjum Polestar 2 fylgir ókeypis vegaaðstoð. Hafðu samband við viðskiptafélaga okkar á Íslandi til að fá frekari upplýsingar.

Centre display showing the screen of the performance software update that is ready to install

Uppfærslur yfir netið

Aukin hagkvæmni hraðastillingar. Aukið umlykjandi hljóð. Fínstilling aflrásar og hámörkun drægni. Þetta eru nokkrar af endurbótunum sem eru innifaldar í nýjustu uppfærslum yfir netið fyrir Polestar 2. Með því að hlaða niður og setja upp nýjustu útgáfuna er tryggt að kerfi og eiginleikar bílsins standist kröfur framtíðarinnar, jafnvel án þess að heimsækja þurfi þjónustustað (service point). 

Skoða allar fyrri uppfærslur

Gagnameðhöndlun og persónuvernd

Ákveðnir eiginleikar í Polestar 2 geta krafist ökutækis-, staðsetningar- og annarra persónuupplýsinga til að geyma kjörstillingar og bæta akstursupplifunina. Finna má allar upplýsingar um hvernig gögn eru notuð og þeim deilt á lagalegum síðum Polestar.

Meira um persónuvernd
Centre display showing the personal accounts of the drivers

Persónulegar upplýsingar

Nánari upplýsingar eins og nafn, heimilisfang og símanúmer, eru geymdar þegar Polestar ID reikningur er stofnaður. Polestar ID veitir aðgang að úrvali af þjónustu og gerir bílnum kleift að muna persónulegar stillingar. Með því getur ökumaðurinn einnig stjórnað Polestar 2 með Polestar appinu.

Centre display showing the Google maps services

Google öpp og þjónusta

Polestar 2 kemur með Google¹ innbyggðu sem gerir kleift að nota Google öpp og þjónustu í bílnum. Ökumaðurinn getur breytt stillingum fyrir deilingu og persónuvernd hvenær sem er.

Meira í þjónustuskilmálum Google
An illustration of the Polestar 2 on a road

Ökutækis- og staðsetningargögn

Gögn sem innihalda verksmiðjunúmer ökutækis (VIN), staðsetningu ökutækis og tímastimpla eru tímabundið geymd og framkvæmd úrvinnsla á þeim vegna virkra öryggiseiginleika, öryggistengdrar þjónustu og notkunar SOS- eða tengja-hnappsins.

Meira um Polestar 2

  1. Google, Google Play, Google Maps og YouTube Music eru vörumerki Google LLC. Google Assistant og sumir tengdir eiginleikar er ekki fáanlegt fyrir öll tungumál eða lönd. Sjá g.co/assistant/carlanguages varðandi fáanlegar uppfærslur fyrir tungumál og lönd. Ekki eru allar þjónustur, eiginleikar, forrit eða áskilin samhæf tæki fáanleg fyrir öll tungumál eða lönd, og geta verið mismunandi eftir gerð bifreiðar. Frekari upplýsingar má finna á hjálparsíðunni (Help Center) og á vefsíðum Google Assistant, Google Maps, Google Play eða framleiðandans.
  2. Fáanleiki sækja og afhenda þjónustu fer eftir getu og staðbundnum forgangi þjónustuaðila okkar.
  • Myndefni er einungis til skýringar.

Fáðu allar nýjustu fréttirnar um Polestar

Gerast áskrifandi
Polestar © 2024 Öll réttindi áskilin
LagalegtSiðareglurPersónuverndVafrakökurAðgengisyfirlýsing